Líf Kristínar....
Búin að finna mér samastað !Kristín Jónsdóttir
http://mercedes.bloggland.isKíkið þangað þar er blogg og myndir, fréttir af húsaframkvæmdum og alles !
Kristín kveður héðan að lokum !
Þessi síða er ekki að gera sig !!!Kristín Jónsdóttir
ÉG GET EKKI SETT INN MYNDIR HÉRNA.... !!! ER BÚIN AÐ SETJA NOKKUR ALBUM EN ÞAU KOMA EKKERT INN..... !!!!ÆTLA AÐ PRUFA INNÁ http://blog.central.is/mercedes_benz ........
Framhald á sögunni um bílinn minn ;) ;)Kristín Jónsdóttir
Inná http://blog.central.is/mercedes_benz :)Hey nú skal ég segja ykkur soldið...Kristín Jónsdóttir
Ég hef tekið þá ákvörðun að nota þessa síðu fyrir myndir, og náttúrlega Vals síðu og svo ætla ég að blogga á http://blog.central.is/mercedes_benz .... Endilega kíkkið þangað og verið dugleg að kommenta ...... :S Hehe, en ég myndi kíkja á þessa síðu því ég er að fara að koma með rosalegar fréttir.... Eða mér finnst þær allavegana rosalega....Nenni samt kannski ekki að koma með það í kvöld en það kemur örugglega á morgun, en tjekkið á því
Kv. Kristín
LaNgAr Að FlYtJa ........ Í dag.....!!!!Kristín Jónsdóttir
Hvenar ætlar þetta helvítis frost að fara, ég sem elska snjóinn og veturinn og frostið þá hata ég það núna.... Eða ok allavegana þá er ekki hægt að steypa fyrr en frostið er farið og svo er Tryggvi að sjá um mokstur í Reykjavík og mér leiðist svo ef hann þarf að fara ef það það fer að snjóa.....Allavegana, þá hugsa ég allan daginn, um hvernig húsið mitt á að vera. Ég get ekki beðið ! Ég er búin að bíða nógu anskoti lengi.....
En það þýðir víst lítið fyrir mig að vera að tuða eitthvað, mér datt líka í hug hvað það er geðveikt sniðugt að vera pípari múrari smiður og rafvirki !! Þá gæti ég reddað þessu bara sjálf á no time
En ég er kominn inn í skólann í tvo tölfræði áfanga og bókfærslu áfanga......

En já hann Valur Snær er náttúrlega sætastur eins og alla aðra daga... :)
"Lag bloggsins"
Óðum steðjar að sá dagur, afmælið þitt kemur enn.Lítill drengur, ljós og fagur lífsins skilning öðlast senn.Vildi ég að alltaf yrðir við áhyggjurnar laus sem nú,en allt fer hér á eina veginn: í átt til foldar mjakast þú. Ég vildi geta verið hjá þér,veslings barnið mitt.Umlukt þig með örmum mínum. Unir hver við sitt.Oft ég hugsa auðmjúkt til þín,einkum þegar húmar að.Eins þótt fari óravegu átt þú mér í hjarta stað. Man ég munað slíkan,er morgunn rann með daglegt stressað ljúfur drengur lagði á sig lítið ferðalag til þessað koma í holu hlýja,höfgum pabba sínum hjá. Kúra sig í kotið hálsa, kærleiksorðin þurfti fá. Einka þér til eftir- -breytni alla betri menn en mig. Erfiðleikar að þó steðji alltaf skaltu vara þig,að færast ekki í fang svo mikið, að festu þinnar brotni tré. Allt hið góða í heimi haldi í hönd á þér og með þér sé.
- Why don´t you just call everyone ?? -
#Kristín#
Kristín Jónsdóttir
Núverandi 11 Janúar 2007
Núverandi Föt? Gallabuxur og bolur
Núverandi Tími? 22:00
Núverandi Skap? Svona þokkalegt.....
Núverandi Hár? Rauðbrúnt og úfið ;)
Núverandi Pirringur? Tryggvi ..... :S
Núverandi lykt? Love spell.....
Núverandi hlutur sem þú ættir að vera gera? Hjálpa Tryggva en samskiptin eru ekki að gera sig :S
Núverandi skartgripir? eyrnalokkar og trúlofunarhringur.......
Núverandi Bók? Engin.......
Núverandi Áhyggja? Engin....
Núverandi Uppáhaldsleikari? Hugh Grant, like always ;)
Núverandi Íþrótt? Non.....
Núverandi Löngun? Humm Kók og nammi, en svo auðvitað að flytja í húsið !!!!
Núverandi Tónlist? Engin því Tryggvi er að horfa á Tíu fréttir ....
Núverandi Ósk? Að húsið verði tilbúið sem fyrst og samskipti okkar Tryggva gangi vel..... :D
Núverandi Texti á heilanum? NÚVERANDi........something......
Núverandi farði? Bara afgangur af meiki síðan í morgun.... :S
Núverandi Undirföt? Black Bra og BLEIKAR nærur.... ;)
Núverandi Eftirsjá? Að ég sé ekki að hjálpa Tryggva..... :(
Núverandi Desktop pic? Valur Snær ofcourse ;)
Núverandi áætlanir fyrir kvöld/helgi? Hvíla mig fyrir kvöldið, gera eitthvað skemmtilegt um helgina :D
Núverandi Blótyrði? .......................
Núverandi Vonbrigði? Að Tryggvi skuli ekki tala við mig í augnablikinu...... :D
Núverandi skemmtun? Tja hvað síðan hans Vals er orðin flott......
Núverandi msn manneskjur sem ég er að tala við? Gugga sæta ;)
Núverandi hlutir á veggnum? Sæmundur Sigmundsson dagatal og myndir ......
Núverandi uppáhalds þáttur? Veronica Mars, because I only see Ríkissjónvarpið !!!!
Núverandi löngun : Að fara undir sængina og fara að sofa, er svo þreytt...... :S
Jebb ekkert spennandi svosem, ég átti að hjálpa Tryggva með eitthvað og hann var að útskýra fyrir mér og ég skildi ekki í fyrstu tilraun og þá var sagan búin..... Dálítið leiðinlegt problem á milli okkar :S
En já...... Annars eru komnar myndir inn af húsframkvæmdum, ekkert merkilegt svosem fyrir suma en fyrir mér er það..... ;)
Koma svo ef þú lest þetta þá verðuru að kommenta, annars er mér að mæta.... M'UHAHAHA.............
Kveð í bili, ætla að gera aðra tilraun tilað hjálpa Tryggva mínum ;)
Long time no see.........Kristín Jónsdóttir
Gleðilegt Nýtt Ár !!!
Langaði bara að byrja á að kasta þessari kveðju á alla
En fréttir af okkur.......
Við héldum afmæli þann 22 des og var það mjög gaman þetta 1 árs afmæli :) Hugsuðum reyndar bæði þá og á aðfangadag (þegar allir æðislegu pakkarinir voru opnaðir) hvað okkur langaði mikið að vera komin í okkar eigið hús til að setja dótið allt á SINN stað
Jólin voru svolítið skrýtin en samt skemmtileg. Við fórum í Bgn me pakka og kort á þorláksmessu og kræktum okkur í skötuLYKT hjá mömmu
Svo var ég að vinna á fim og fös milli jóla og nýárs og það var svo notalegt, það voru 5-7 krakkar í öllum leiksskólanum þá :)
Á gamlársdag var haldi í SORGARNESIÐ og við fögnuðum nýju ári heima hjá minni yndislegu mömmu og mínum yndislega pabba, EKKI á Kveldúlfsgötu 23 heldur 20 !!! Sem var ekki nærri því eins gaman en maður verður víst að láta sig hafa það....
Nýársdagur fór í afslöppun og leti og það var mjög gott, við borðuðum Rosa góðan mat hjá mömmu og fórum svo heim í sveitina....
Svo tók vinnan bara við og þannig, fórum reyndar í jarðaför á miðvikudaginn
En húsaframkvæmdirnar ganga bara nokkuð vel, Tryggvi er búinn að grafa grunninn (sem er svaka stór! ), svo er hann búinn að gera veginn og hann er lika búin að gera svaka stórt plan fyrir trailerana til að koma húsinu í heilu lagi á sinn stað
Svo var ég að sækja um í Fá í fjarnámi. Ég sótti um í TÖL og BÓK því ég er að fara á tölvu og skrifstofubraut.... Tek bara lítið núna því maður verður eflaust mikið í að koma húsinu í gagnið
Ég held að það sé ekki meira í bili
Hann er fundinn !!!!! Þið verðið að lesa þetta !!!!Kristín Jónsdóttir
Það eru samt kannski ekki allir sem fatta hana, en aumingja þeir þá bara .....![]()
Sko það byrjaði allt á miðvikudaginn síðasta, daginn sem ég og Tryggvi skutumst Cruisernum suður því það átti að sína hann á einhverri bílasölu og svo var ég að fara í próf. Við vorum að rúnta þarna uppá höfða rétt fyrir 6 og þá sáum við þennan undurfagra jeppa, þjótast framhjá okkur og ég meina þetta var ást við fyrstu sín. Ég sá að hann beygði inná planið hjá Bílanaust og ég rak Tryggva auðvitað þangað til að skoða hann aðeins betur. Hann var svo flottur
En ég fattaði ekki að klára að lesa á númerið á bílnum en ég sá að það var ZG eitthvað.

Svo gat ég ekki hugsað um neitt annað en þennan Cruiser en Tryggvi var samt ekki eins spenntur og ég samt, en svo á laugardaginn þegar við vorum að koma heim úr rvk, við vorum á Broadway á jólahlaðborði og gistum á hótelinu, þá sáum við HANN ! Við vorum að keyra í beygjunni hjá Skeljabrekku og ég rétt svo næ að sjá í hann því ég var að eitthvað að grínast í Val
En sagan er sko aldeilis ekki búin ! Því á sunnudaginn þá var Tryggvi eitthvað í tölvunni og datt í huga að kíkja iná 4x4 og hvað haldiði !! HA !! Fyrstu myndirnar er af HONUM, þá hafði hann verið uppá Langjökli á laugardaginn og hefur eflaust verið að koma þaðan þegar við sáum hann á lau. Ég var líka ekki lengi að rífa tölvuna af Tryggva
En þá kemur að aðalatriðinu !!! Vitiði hvað endirinn á númerinu á bílnum var !!!??? Þegar ég sá það þá vissi ég það að han yrði að verða minn !! Og ég sendi gaurnum sem setti inn myndirnar á 4x4 mail og hann sagði mér nafnið á eiganda bílsins og þá hófst leitin af honum inná 4x4 og han fannst og ég sendi honum mail, EEEENNNN..... Hann er ekki til sölu.....
Annars er ég búin að semja við Tryggva að ef gæinn er á lausu þá ætla ég bara að reyna við hann og fara svo frá honum og taka húsið og bílinn, eins og Tryggi segir alltaf !!!
En já nú skuluð athuga hvað númerið er !!! Þið trúið þessu ALDREI !!! But belive it or not, it´s true !!!!
http://www.f4x4.is/new/photoalbum/default.aspx?file=ferdamyndir/4990
20 dagar í jólin og brjálað að gera !!!Kristín Jónsdóttir
Já það er allt að gerast hjá okkur núna og það verður brjálað það sem eftir er af þessum mánuði, og ári.....Sko ég er búin að skrifa á eitt kort, er að bíða eftir að fá fleiri kort til að geta byrjað, en hins vegar er ég búin að skrifa á öll umlögin....

Svo er nú komin öll leyfi og allt að fara á fullt í húsamálum !!!!

En já svo er það Broadway á föstudag og Hótel Ísland, með vinnunni hans Tryggva og svo á þar næsta helgi er það matur heima hjá einum samstarffélaga mínum. Og tvítugs afmæli hjá Helgu minni !!
Ég og Gugga fórum í bæinn á lau að kaupa jólaföt, það var mjög gaman, ágætt a hafa ekki gríslingana með, við sáum alveg slatta af krökkum sem voru sko að drepast úr leiðindum....
En já ég held að það sé ekki meira í bili, þótt að það sé örugglega ekkað merkilegt sem ég er að gleyma :)
Sæl að sinni, kv. Kristín
Valur Snær er 11 mánaða í dag... :)Kristín Jónsdóttir
Þá eru víst 11 mánuðir síðan hann Valur okkar kom í heiminn
Það er ótrúlegt hvað þetta líður !! Hann er orðinn algjör grallari...HEH...
En við fórum á Vog um helgina .....
Það er svona orlofshús sem er á Mýrum og pabbi tók það á leigu og bauð okkur systkinunum þangar. Við vorum 18 allt í allt. Það var mjög gaman.

Við fórum í smá bíltúr og gerðum ýmislegt, eins og horfá MAgnús 40 sinnum... HAHA....
Svo fékk ég myndirnar úr myndatökunni og þær eru æði !! Ég sit og skoða þær stundum tímunum saman :O hehe ....
Ég tók til í gær, ég var svo dugleg ég breytti öllu í öðru herberginu, ég er svo ógeðslega fúl útaf þesu húsadæmi að ég er að springa og ákvað að þetta myndi kannski aðeins laga geðvonskuna í mér, en þá varð bara Tryggvi geðveondur við það , nei segi nú bara svona. Æji hann er svo viðkvæmur þegar kemur að einhverjum breytinum og þannig.
Í gær þegar ég var í vinnunni og Valur hjá dagmömmunum þá hringdu þær í mig rúmmlega tólf og sögðu að hann væri með 39.7 stiga hita !! Við fórum auðvitað beint heim og þegar ég mældi hann hérna heima, eftir að þær gáfu honum stíl, þá var hann með 38.1 og svo þegar hann fór að sofa þá var hann með 37.6 og í morgun var hann ekki með hita... Ég veit ekki af hverju hann fékk alltí einu svona mikiinn hita???? Skil það bara ekki, hann var alveg voða hress og hjálpaði til í gær að taka til og þannig, sullaði vel og vandlega í skúringarvatniu og þannig
En það eru myndir af ferðinni á Vog og ný færsla í vefdagbókinna hjá Val og muna a kvitta og kvitta !!! Hjá mér og hjá honum.....
Já svo er jólahlaðborð hjá trésmiðjunni 8 des á Broadway :) og við gistum eflaust á hótelinu :) :D
En að lokum ætla ég að setja inn tvær myndir :)


Erum við ekki sæt saman :) HEHE.....


